Hvergiland
26.04.2006 19:25:25 / margret

Ný bloggsíða

Ég er búin að gera nýja bloggsíðu og mun nota hana framvegis.

Slóðin er :
http://molly.blog.is


!ǐď萀Ϙ匭婉㩅ㄠ瀶㭴䌠䱏剏›昣㙦〶㬰䘠乏ⵔ䅆䥍奌›牁慩㭬洠潳戭摩⵩潦瑮猭穩㩥ㄠ⸲瀰㭴洠潳愭獮⵩慬杮慵敧›卉※獭ⵯ慦敲獡⵴潦瑮昭浡汩㩹攀瑮

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 22:18:40 / margret

Hæ og hó


Sæl og blessuð öll sömul
Það er mikið að gerast núna. Ég er náttúrulega búin að vera að sýna Jesus Christ Superstar sem er mjög skemmtilegur söngleikur. Jesús er algjört æði hann syngur svo vel. Svo er Baldur litli bróðir að leika Pílatus og ég trúði því varla að hann væri að syngja þegar ég heyrði hann í fyrsta skipti því hann gerir það svo vel. Ég er mjög ánægð með þessa sýningu og mér heyrist áhorfendur líka vera það.

Á sunnudaginn mætti ég á fyrstu æfingu með leikhópnum Sögu. Við ætlum nefnilega að setja upp leikrit en við erum ekki alveg búin að ákveða hvaða leikrit. Held að þetta verði mjög skemmtilegt. Er reyndar svolítið þreytt en ég get ekki setið kyrr og gert ekki neitt svo ég held alltaf áfram að hlaða á mig verkefnunum.

Mamma er í heimsókn núna og það er bara mjög fínt. Hef fengið ágætis mat að borða eftir að hún kom svo það er ekki verra:)

Fór á Maríubjölluna um daginn sem var bara ágætis skemmtun. Ég skildi samt ekki pointið með maríubjölluna í leikritinu en ég fatta sjaldan eitthvað svona.

Heyrið frá mér seinna þegar ég hef tíma
Kv.


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 17:39:27 / margret

Veikindi og fleira


Undanfarið hef ég verið veik. Ég hef ekki mætt í skólann neitt eiginlega... Þessi veikindi voru orðin pínu langdregin alveg eins og mynd sem þú nennir engann veginn að horfa á. Ég er samt orðin nokkuð frísk núna. Hóstinn er reyndar ekkert að fara.

Í gær fór ég í kokteilboð til Kristínar og Línu og það var mjög skemmtilegt. Ég gat reyndar ekki farið að djamma eftir það, fór bara heim að sofa. Mér má ekki slá niður sjáiði til. En ég hefði svo viljað fara. Heyrði það daginn eftir að það hefði verið troðið inná Kaffi Ak:(....Ömurlegt að geta ekki farið.

Var á æfingu áðan og það gekk bara prýðilega. Ég held að þessi sýning eigi bara eftir að verða nokkuð skemmtileg.

Annars hef ég lítið annað að segja
Kv.



» 7 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 22:27:10 / margret

Jamm

Ása! ég vil ekki klukka neinn. Þá verður maður bara leiðinlegur.

En næst á dagskrá er eitt stykki inntökupróf....
Er að reyna að sauma drakt. Sjáum til hvernig það á eftir að ganga.

» 9 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 21:33:56 / margret

Klukk

Hildur klukkaði mig svo.........

4 störf sem ég hef unnið við
  • Hef unnið á Vogi
  • Sagði: "Sparisjóðurinn góðan dag". eitt sumarið
  • Var bakari síðasta sumar
  • Ég var líka einu sinni leiðtogi í sumarbúðum sem var mjög skemmtilegt fyrir utan það þegar krakkarnir dróu mig útí sjóinn og þegar þeir kölluðu mig einkennilegustu nöfnum útaf röddinni minni
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur....hmm.
Það eru í raun ekki margar en
  • t.d. ten things I hate about you. Hún getur verið ágæt stundum
  • Forest Gump
  • Chaplin myndirnar
  • og síðan...örugglega einhver hryllingur og spenna
Staðir sem ég hef búið á
  • Reykjavík
  • Akureyri
  • Bolungarvík
  • Svíðþjóð og
  • Hvanneyri
4 sjónvarpsþættir sem mér líkar
  • That 70´s show
  • Law and order
  • Strákarnir og
  • Sex and the city
þetta var reyndar mjög erfitt þar sem að ég horfi næstum aldrei á sjónvarp

4 síður sem ég fer mest á
  • muninn.is
  • femin.is
  • spamadur.is
  • google.com
  • og síðan bloggið mitt
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum...
  • Noregur
  • Þýskaland
  • Holland
  • Skotland
  • og danmörk er næst í maí
4 uppáhalds "matar":P
  • fiskibollurnar hennar ömmu
  • lambalæri með gratíneruðum kartöflum:)
  • Pizza
  • Jólasteikin....sem er hamborgarahryggur
4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna
  • Egyptaland
  • Grikkland
  • LA
  • Kúba
  • og uppí rúmi hjá þér:p...hehe
Jamm en ætla að fara að pakka niður fyrir háskólaferðina....heyrumst

kv.


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 23:11:20 / margret

Andsetið

Jamm bloggið mitt er eða var andsetið. Það voru komin svona 90 komment á einhverjar bloggfærslur um alls kyns klám. Þarna komst upp um mig:s...En allavega þá lét ég mömmu blessa síðuna og hefur hún ekki ruglast síðan:D

ég er búin að vera að gera allt of mikið. LA námskeiðið sem ég var á kláraðist á miðvikudaginn í síðustu viku og héldum við svo lokakvöld á fimmtudaginn þar sem við sýndum afrakstur námskeiðsins. Ég lék þar trúð eins og allir hinir og var þetta alveg rosalega gaman.

Jesus Christ Superstar er að verða að ekkert smá flottu show-i. Þetta á eftir að verða svona sýning sem ekki má missa af. Ég hef verið á hverjum degi á æfingum vegna þessa og samskipti mín við annað fólk utan verksins er mjög takmarkað. Því miður:s...Ég er eiginlega búin að gleyma hvað orðið að læra þýðir vegna æfinganna.

Fór á þorrablót um helgina og komst fyrir tilviljun að því að einn af þeim sem voru að spila á ballinu var frændi minn. Hljómsveitinni fannst alveg tilvalið að ég yrði söngkona þeirra í einu laginu sem þeir spiluðu. Ég var nú ekkert á móti því en var samt ekki viss hvort þeir væru að djóka eða ekki. Þegar um það bil einn og hálfur tími var búið af ballinu segir frændi minn í míkrafóninn: "nú ætlum við að taka lagið riddari götunnar og hún Margrét frænka mín ætlar að hjálpa okkur með það".  Ég vissi ekki alveg hvað ég ætti að gera en svo fór ég upp á svið og söng þetta með þeim. Þetta var mjög skemmtileg upplifun.

Háskólakynningin til Rvk er næstu helgi og á það eftir að verða rosa fjör held ég. Vonandi allavega:)...

kv.


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 20:01:51 / margret

Margt um að vera

Ég er búin að vera á fullt af æfingum vegna Jesus Christ Superstar. Þetta er auðvitað tímafrekt en skemmtilegt:)

Leiklistarnámskeiðið sem ég er á er ekkert smá skemmtilegt. Þetta er svona mest spuni en einnig alls kyns æfingar.

Ég hef ekki þurft að læra mikið hingað til en það eru víst ýmis verkefni frammundan svo við sjáum til með þessi ágætis rólegheit.....

Það er lítið annað búið að vera að gera hjá mér en mér fannst ég samt þurfa að skrifa eitthvað hérna....


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 23:22:20 / margret

Reykjavíkin

Hæhæ er bara hérna á vistinni í banastuði...Var að enda við að koma af leiklistarnámskeiði sem er alveg meiriháttar skemmtilegt.

 

Kom frá Reykjavík í dag og hafði það nú bara ágætt þar...hitti ýmsa í Smáralind sem var frekar vandræðalegt en ég náði að jafna mig á þessum atburði eftir að ég gat slappað af í bíó.

 

Helstu atburðirnir í þessari ferð voru eftirfarandi

  • Ég passaði litlu frænku mína (sem er algjör dúlla) og hlustaði svona milljón sinnum á lagið Grænt,grænt, grænt er blumen út í haga (þýsk/íslensk þýðing þar sem sú stutta er frá báðum löndunun)

  • Ég fór á hárgreiðslustofuna Rauðhetta og úlfurinn og kom út eins og reitt hæna….Ég var allavega ekki ánægð með klippinguna…ætla ekki þangað aftur

  • Hitti hana Árnýju og við flautuðum á mesta hunk borgarinnar….sem sneri sér við og skammt frá sáum við svo konu hans og barn…J

 

  • Ég fór til ömmu og fékk bestustu súkkulaði köku í heimi:D

Fleira var það nú kannski...en þetta er það helsta:)

Kv.


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 16:18:40 / margret

bloggedíblogg

Jamm..nú var næstsíðasta prófið að enda. Ég var búin að heyra að einkunnir ættu að koma í dag kl.1 en ég hef ekki séð eina einustu einkunn:S.....En þið? Næsta próf er líffræði hjá Sigga Bjarklind...held að það verði "lítið" mál.:)

30.janúar byrjar leiklistanámskeið hjá LA. Ég skráði mig að sjálfsögðu í það. Þetta námskeið á víst að enda með uppsetningu á leikriti....vona að þetta eigi eftir að vera gaman:D

Á mánudaginn ætla ég að fljúga suður og vera þar næstu vikuna...það verður gott að slappa smá af. Ég hef eiginlega ekki gert mikið af því síðan ég kom. Hef alltaf farið svo seint að sofa.

Annars er lítið annað að frétta af mér...ætla að skreppa smá í ræktina:)

Kv.


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 20:43:47 / margret

Próftíð



Jæja þá er próftíðin að skella á og allir komnir í partýfílinginn......eða ekki.....
Þetta flýgur alltaf áfram svo að ég kvíði engu.

Um áramótin fór ég á mjög skemmtilegt áramótaball í Bolungarvík. Ég var búin að búast við því að ekkert myndi gerast um áramótin, því að þetta er jú svo líflegur bær, og ég myndi sitja heima og horfa á sjónvarpið eða eitthvað en Lóa og Elín sáu til þess að svo varð ekki:)

Þessi helgi hefur að mestu leiti farið í lærdóm. Í gær fór ég reyndar í bíó á myndina Hostel sem er alveg hreint út sagt ömurlega leiðinleg. Söguþráðurinn er lélegur. Þetta var mjög illa gerð mynd og ég held að þeir sem gerðu þessa mynd hafi spurt fólk út á götu hvort það gæti leikið í myndinni því þetta var líka illa leikið:S

Annars vona ég bara að öllum MA-ingum gangi vel í prófunum og kveð að sinni.





» 1 hafa sagt sína skoðun

31.12.2005 15:03:07 / margret

31.desember 2005

Nú er kominn síðasti dagur ársins 2005. Ég næ þessu varla. Mér finnst þetta ár hafa verið eins og ein vika. Hin árin voru miklu lengur að líða:S

Ætti maður svo að setja áramótaheit..???? Ég veit ekki alveg hvaða áramótaheit það ættu að vera en kannski gæti ég bara sagt...nr.1 Að útskrifast 17.júní:P Ég held samt að ég þurfi varla að setja áramótaheit um það en aldrei að segja aldrei....
Hvaða áramótaheit ætlið þið að gera?

Ég er alveg búin að snúa sólahringnum við í þessu fríi:S....Ég fór að sofa um 3-4 leitið og vaknaði um 2 leitið í morgun. Það er ekki alveg nógu gott þegar maður þarf bráðum að fara að vakna um 7 leitið til þess að fara í skólann8|
En ég fer bráðum að breyta þessu eftir áramótin;)

Gleðilegt nýtt ár bráðum.....Sjáumst

Kv.




» 110 hafa sagt sína skoðun

27.12.2005 18:32:14 / margret

Heima

Ég er enn heima hjá mér og bróðir minn og kærastan hans voru að fara. Nú verðum við bara þrjú heima um áramótin og finnst mér það heldur einmanalegt. Það er svo fátt eitthvað.

Ég fór á ball í gær með hljómsveit sem heitir BMX. Þeir eru þokkalegir. Það kostaði samt ekkert smá mikið inn eða 1800 sem er algjört okur. Mig minnir að það kosti það sama á ball með Í svörtum fötum í Sjallanum. Þarna kom fók ekki fyrr en svona hálf 2 eða 2 og þá byrjaði hljómsveitin að spila. Þeir spiluðu bara í rúman klukkutíma því ballið var búið kl. 3. Þetta er nú meiri vitleysan.

Annars ætlaði ég bara að skrifa eitthvað hérna.
kv.


» 99 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 15:30:23 / margret

Laugardagurinn 24.desember

Í dag eiga víst þessi svokölluðu jól að vera og í tilefni þessa hef ég sett eitt ljóð inn á síðuna LJÓÐ VIKUNNAR þó þetta séu nú ekki ljóð vikunnar.

Mér finnst í rauninni þessi dagur vera alveg eins og allir aðrir dagar. Bara eins og allir hinir dagarnir þar sem maður lærir eða fer í ræktina og fleira en hann á víst ekki að vera þannig. Ég ætla að vona að jólaskapið komi bara kl. 6 þegar maður er sestur á kirkjubekkinn og heyrir forspilið óma um kirkjuna.

Ég vona samt að aðrir eigi gleðileg jól og heillaríkt komandi ár.

Kv.



» 107 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 13:48:24 / margret

Bolungarvík, 20.desember 2005

Nú er ég komin til Bolungarvíkur. Það er mjög þægilegt að vera komin í jólafrí. Núna þegar maður þarf ekki að vera að stressa sig yfir neinu þá nennir maður að læra. Ég hef ekki nennt að læra alla önnina svo þetta er fínt.

Það æðislegasta við að vera kominn heim er að núna getur maður fengið sér það sem manni langar að borða. Ég hef verið að baka speltbrauð sem er mjög gott og ætli ég fari ekki að baka eitthvað fleira hollt og gott.

Ég er bara ekki komin í neitt jólaskap. Ég skil þetta bara ekki. Hafið þið einhver ráð til að koma manni í soleis skap?....:$

Kv



» 94 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 16:46:03 / margret

Ætli þessi bloggfærsla verði ekki að fá titilinn: Jólin, jólin, jólin koma brátt

Síðasta blogg var alveg hræðilegt. Það sýndi bara eitt að það las enginn það sem stóð í blogginu.

Ég hef verið að útrétta ýmislegt fyrir jólin alveg eins og allir aðrir. Það er hitt og þetta sem þarf að kaupa þangað til allir peningarnir hverfa eins og álfur hafi gleypt þá í heilu lagi og orðið að risa.
Á morgunn fer minns í jólafrí og minns hlakkar mjööög til. Það verður svo æðislegt að ég veit ekki hvort ég á að hoppa eða öskra...Hvort er betra við þetta tilefni?

Ég er búin að vera í dáldið mikilli törn núna. Verkefnaskil, nokkur próf og svona en ég held samt að ég hafi ekki haft eins mikið að gera eins og Elín.
    Námstæknin sem notuð var fyrir þessi próf er eftirfarandi:

  • Hringja í einhvern svo maður geti örugglega lært aðeins meira seinna þann daginn.
  • Fá einhverja í heimsókn eins og Hrafnhildi eða að fara í heimsókn til hennar til að geta lært ennþá meira á eftir.
  • Fara að föndra eða pakka inn jólagjöfum því það er ekki hægt að gera það seinna
  • Og svo síðast en ekki síst. Læra á í 15 mín á móti pásu í svona 45 mín.
Já svo hér hafið þið það. Þessi námstækni er alveg skilar alveg gríðarlega miklu svo endilega prófiði hana;)

Gleðileg jól öll sömul og hafiði það alveg æðislegt í fríinu.

Jólakveðja Margrét:D




» 109 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6